Starfið á staðnum.
Skipulagsbreyting var gerð á starfsemi Fjölmenntar á Akureyri vorið 2009. Ákveðið var að stofnunin yrði rekin samkvæmt hugmyndafræði Símenntunarstöðva. Í ágúst 2009 var gerður samstarfssamningur milli Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðarsvæðis, SÍMEY og Fjölmenntar. Í honum kveður á um :
- að þessir aðilar ætla að starfa saman að því að bjóða upp á námskeiðahald fyrir fólk með fötlun á Eyjafjarðarsvæðinu
- Starfmaður frá Fjölmennt sér um skipulagningu starfseminnar í samstarfi við SÍMEY.
- Símey sér um alla fjárhagslega umsýslu námskeiðahaldsins og ræður kennara/leiðbeinendur ásamt starfsmanni Fjölmenntar
- Ráðgjöf og stuðningur við kennara/ leiðbeinendur sem starfa hjá Fjölmennt er í þróun
- Samstarfið við SÍMEY á eftir að þróast á næstu árum.
Fjölmennt hefur starfað samkvæmt nýja skipulaginu frá haustönn 2009 og það sem af er vorönn 2010. Helstu breytingar á starfseminni eru eftirfarandi.
- Meiri fjölbreytileiki í námskeiðatilboðum. Styttri námskeið (4-12 vikur) sem dreifast yfir önnina.
- Nemendur sýna áhuga á að sækja um ný námskeið og þar með tileinka sér nýja þekkingu og færni á ýmsum sviðum. Sumir nemendur sækja um allt að 8 námskeið á einni önn
- Fleiri námskeið í boði fyrir mikið fatlaða einstaklinga en áður var.
- Sveigjanleiki er meiri á ýmsum sviðum. Nemendur geta sótt um námskeið í byrjun annar og einnig síðar á önninni þegar auglýst eru ný námskeið.
- Nemendur fá að kynnast mörgum nýjum kennurum og það upplifa þau jákvætt.
