Um starfið
Fjölmennt í Reykjavík er til húsa í Vínlandsleið 14 og eru flest námskeið haldin þar. Þar er einnig skrifstofa og stjórnsýsla Fjölmenntar, en Fjölmennt starfar á landsvísu. Einnig eru haldin námskeið fyrir fólk með geðröskun, á vegum Fjölmenntar, við ýmsar menntastofnanir á höfuðborgarsvæðinu og er fyrirhugað að efla þann þátt starfseminnar.
Fjölmennt leitast við að standa fyrir fjölbreyttum námskeiðum fyrir fólk með fötlun. Í Reykjavík er starfseminni skipt í tvær deildir. Annars vegar deild sem ætluð er fólki með geðröskun þar sem um 70 manns stunda nám á hverri önn á námskeiðum í Vínlandsleið og við aðrar menntastofnanir. Verkefnisstjóri er Anna Filippía Sigurðardóttir. Hins vegar er deild sem ætluð er fólki með þroskaröskun þar sem boðið er upp á námskeið í Vínlandsleið og er deildarstjóri Helga Gísladóttir. Við þá deild er einnig boðið upp á námskeið við aðrar menntastofnanir þar sem verkefnisstjóri Kristín Eyjólfsdóttir.
Á vorönn er gefinn út bæklinur með yfirliti yfir þau námskeið sem boðið verður upp á veturinn á eftir. Flest námskeið standa yfir heila önn, einu sinni í viku, en sum námskeið standa yfir 8 – 12 vikur og eru sum þeirra oftar í viku. Haustönninn hefst 1. september og lýkur um miðjan desember. Vorönnin hefst í byrjun janúar og lýkur 20. maí.
Deildarstjóri og verkefnastjórar veita upplýsingar og ráðgjöf um val á námskeiðum ef óskað er. Símatíma og netföng þeirra er hægt að nálgast hér á heimasíðunni.
