Boltagreinar

Á námskeiðinu er unnið með fjölbreytta hreyfingu við hæfi og áhuga hvers og eins.

Þátttakendur prófa helstu íþróttagreinar undir leiðsögn kennara og jafnframt er gert ráð fyrir að aðstoðarfólk þátttakenda taki virkan þátt í kennslustundum.

Farið verður í fjölbreyttar íþróttagreinar, t.d. fótbolta, handbolta, körfubolta og bandý.

Markmið námskeiðsins er fyrst og fremst að skapa líflega og skemmtilega stemningu í íþróttasalnum ásamt því að auka hreyfifærni og þol þátttakenda.

Kennt er einu sinni í viku, á miðvikudögum eftir hádegi.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Íþróttahús fatlaðra
Verð: 8.800-17.700
Tími: 8-16 vikur
Eydís Hulda Jóhannesdóttir
Matthías Már