Búðu til þitt eigið jólalag

 Langar þig til að búa til þitt eigið jólalag?

Þátttakendur fá tækifæri til að semja sitt eigið jólalag á spjaldtölvu og fá aðstoð við að deila laginu á samfélagsmiðlum eða tölvupóstformi ef áhugi er fyrir því.

Þátttakendur eru hvattir til að mæta með eigið snjalltæki.

Námskeiðið  er í eitt skipti, klukkustund í senn,  ef næg þátttaka þá verður boðið uppá námskeið bæði fyrir og eftir hádegi. 

Námskeiðin verða haldin á tímabilinu 10. -19.desember.

Nánari tíma- og dagsetning kemur síðar.

Reynt verður eftir fremsta megni að koma til móts við þarfir þátttakenda með tímasetningu námskeiðs.

Staður: Fjölmennt
Verð: 2.000
Tími: 1 skipti
Helle Kristensen
Steinunn Guðný Ágústsdóttir