Frisbí-golf á Klambratúni

Hefur þú prófað frísbígolf? Langar þig að prófa?

Frisbígolf er spilað svipað og hefðbundið golf nema með frisbí-diskum. Takmarkið er að kasta frisbí-diskum í holur í eins fáum köstum og hægt er.

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig best er að spila leikinn, farið yfir leikreglur og svo auðvitað spilað Frisbí-golf.

Ekki er nauðsynlegt að eiga frisbí-diska en þeir sem eiga diska eru hvattir til að koma með þá.

Námskeiðið fer fram á Klambratúni.

Námskeiðstímabil: 21. maí - 1. júní. Nánari tíma- og dagsetning ákveðin síðar.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki. 

 

Staður: Klambratún
Verð: 1.500
Tími: 1 skipti