Myndlist - vinnustofa

Vinnustofan er annars vegar hugsuð sem sjálfstæð vinna undir handleiðslu kennara fyrir hóp sem á það sammerkt að hafa fengist töluvert við listiðkun og jafnvel mótað persónulegan stíl. Hins vegar er boðið uppá kennslu í tækni, efni og aðferðum fyrir nýja nemendur.

Vinnustofan er því sérsniðin að þörfum hvers og eins og um leið hvatning til þess að þátttakendur haldi listiðkun sinni áfram og víkki áhugasvið sitt og getu í myndlist.

Kennt er á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum. Þátttakendur geta sótt um að vera einu sinni í viku, tvisvar í viku eða alla dagana. Vinsamlegast tilgreinið það í umsókn hvaða dag / daga sótt er um.

Mánudagshópur: klukkan 12:30- 15:00. 

Þriðjudagshópur: klukkan 12:30 - 15:00.

Fimmtudagshópur: klukkan 12:30 - 15:00. 

Hámarksfjöldi í hóp: 6

Sótt er um nám í myndlistaskólanum á heimasíðu Myndlistaskólans:  https://myndlistaskolinn.is/ 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir.

 

Staður: Myndlistaskólinn í Reykjavík
Verð: 66.000
Tími: 13 vikur
Kristinn G. Harðarson