Nestisbiti í lautarferðina

Námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að útbúa hollan, góðan og einfaldan nestisbita sem gott er að taka með í lautarferðina.

Þessir nestisbitar henta líka í alls konar útivist eins og göngutúra, fjallgöngu eða hjólaferðina.

Njótum þess að vera úti í náttúrunni með gott nesti og í góðum félagsskap.

Nánari tímasetning verður auglýst síðar. Reynt verður að koma til móts við óskir þátttakenda um tímasetningu, vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími dags hentar best.

Umsóknarfrestur er til 15. maí.

 

Staður: Fjölmennt
Verð: 3.000
Tími: 1 skipti