Podcast
Nafnið Podcast, á íslensku hlaðvarp, er sett saman úr orðunum "broadcast" og "iPod". Í Podcast forriti er hægt að finna áhugavert efni til að hlusta á í tölvu eða snjalltæki.
Á námskeiðinu verða kynntir möguleikar Podcast forritisins svo sem að leita að efni og merkja uppáhaldsþætti til þess að hlusta á.
Kennt er einu sinni í viku, 2 kennslustundir í senn.
Námskeiðið er í 3 skipti.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.