Vatnsleikfimi
Kenndar verða æfingar í vatni sem auka úthald og gerðar liðkandi og styrkjandi æfingar.
Einnig verður farið í æfingar sem reyna á samvinnu og félagsfærni þátttakenda.
Áhersla er lögð á að allir fái æfingar við sitt hæfi.
- Kennt er einu sinni í viku, 1 kennslustund í senn.
- Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.
ATHUGIÐ: Kennari kennir af sundlaugarbakka. Þeir sem þurfa aðstoð ofan í laug og í klefa þurfa að hafa aðstoðarmann með sér.