Zumba

Allir dansa zumba þessa dagana og hentar dansinn öllum aldurshópum. Vertu með á fjörugu námskeiði.

Zumba dans hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim. Gleðin sem fylgir tónlistinni og dansinum fær þig til að hreyfa þig og allir uppgötva danshæfileika sína.

Helsti kosturinn við Zumba er að dansinn hentar öllum aldurshópum. Sporin eru einföld, stuðið og fjörið mikið og tónlistin er skemmtileg. Á sama tíma og þú skemmtir þér nærðu að bæta þol, jafnvægi og samhæfingu sem er uppskriftin að góðri líkamsrækt.

Kennt er á miðvikudögum klukkan 16:30 - 17.10. 

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

 

Staður: Styrkur, sjúkraþjálfun
Verð: 12.900
Tími: 10 vikur