Zumba í vatni
Í vatns zumba eru gerðar ýmsar vatnsleikfimi æfingar til að styrkja líkamann og auka úthald. Í tímanum er tónlist og mikið fjör.
Námskeiðið er 10 vikur
Kennt er á föstudögum klukkan 16:30-17:30.
Nánari dagsetningar koma síðar.
Kennslustaður: Sundlaug Sjálandsskóla, Löngulínu 8, Garðabæ.
Athugið að þeir sem þurfa aðstoð í klefa verða að hafa með sér aðstoðarmann.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.