Fréttir og tilkynningar
Boltagreinar
Það er alltaf góð stemming í þessum tímum. Tíminn byrjar á því að hitað er upp með eða án bolta. Svo er farið í ýmsar æfingar með bolta s.s. körfubolta eða fótbolta.
Svo er skipti í tvö lið og spilað. Þessa önnina hefur verið mjög vinsælt að spila bandý.
Það myndast mikil stemming og hafa orðið miklar framfarir í spili og samvinnu á milli liðsfélaga. Mjög skemmtilegir tímar með miklu fjöri.
Hér má sjá myndbrot sem sýnir betur en mörg orð stemminguna í boltatímunum.

