Starfið á staðnum

Starfið á staðnum

Fjölmennt í Reykjavík er til húsa í Vínlandsleið 14. Flest námskeið Fjölmenntar eru haldin þar og þar er einnig skrifstofa og stjórnsýsla Fjölmenntar á landsvísu. Fjölmennt leigir einnig húsnæði fyrir starfsemi sína á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Starfsemi Fjölmenntar  í Reykjavík er skipt í tvær deildir. Annars vegar deild sem ætluð er fólki með þroskahömlun og þar stunda tæplega  400 manns nám á hverri önn.

Hins vegar er deild fyrir fólk með geðröskun og þar eru um 50 manns að jafnaði á námskeiðum. Verkefnastjóri náms fyrir fólk með geðröskun er Anna Filippía Sigurðardóttir.

Fjölmennt býður upp á fjölbreytt námskeið og eru tæplega hundrað námskeiðstitlar í boði á hverri önn. Á vorin kemur út námskeiðsbæklingur með yfirliti yfir þau námskeið sem í boði eru veturinn á eftir. Flest námskeiðin standa í heila önn og eru einu sinni í viku. Kennt er frá 8:30 á morgnana og fram á kvöld. Haustönnin hefst 1. september og lýkur um miðjan desember. Vorönnin er frá byrjun janúar og stendur til 20 maí. Undanfarið hefur það færst í vöxt að bjóða upp á styttri námskeið og verður það aukið í framtíðinni.

Frá vorinu 2005 hefur Fjölmennt leitað eftir samstarfi við aðrar menntastofnanir. Um er að ræða samninga um námskeiðahald fyrir nemendur Fjölmenntar. Samstarfsaðilum er alltaf að fjölga og stunda nú um 90 manns nám við 7 menntastofnanir. Kristín Eyjólfsdóttir þroskaþjálfi er verkefnastjóri fyrir þessum hluta starfseminnar.

Deildarstjóri Fjölmenntar í Reykjavík er Helga Gísladóttir.

Deildarstjóri og verkefnastjórar veita upplýsingar og ráðgjöf um val á námskeiðum ef óskað er. Símatíma og netföng þeirra er hægt að nálgast hér á heimasíðunni.

 

Senda




Leita á vefnum


18. maí 2012
Reykjavík

Fjölmennt tryggir einstaklingsmiðaða, heildræna og sveigjanlega þjónustu, sem byggist á markvissu samstarfi við notandann og þá aðila sem best þekkja lífssýn hans, þarfir og áhugamál. 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica