Fréttir og tilkynningar

1.3.2011

Tónleikar með Bubba og kór Fjölmenntar á Selfossi

  • Kór Fjölmenntar á Selfossi

Undanfarna vetur hefur kór Fjölmenntar á Selfossi tekið fyrir lög eftir þekkta tónlistarmenn og haldið síðan tónleika með þátttöku þeirra sjálfra. Árið 2008 æfði kórinn lög eftir Valgeir Guðjónsson og fór í framhaldinu í söngferð til Englands með Valgeiri, þar sem þeim var vel tekið.  Árið 2009 æfði kórinn lög eftir sænsku sveitina Abba. Það tókst því miður ekki að fá þau til að koma saman aftur af því tilefni, en kórinn flutti lögin á tónleikum á Hótel Hilton í Rekjavík um vorið. Í fyrra voru tekin fyrir lög eftir popparann Ingó og kom hann fram á tónleikum með kórnum í byrjun maí 2010.

Í haust ákvað kórinn að taka fyrir lög eftir sjálfan kónginn, Bubba Morthens.  Bubbi tók því ljúfmannlega að koma fram á tónleikum með kórnum og þar sem hann vildi ekki taka neitt fyrir það, þá var ákveðið að láta ágóðan renna til krabbameinssjúkra barna.  Tónleikarnir verða í Hvíta húsinu á Selfossi, miðvikudaginn 9. mars kl 16.30.  Allir eru hjartanlega velkomnir og fólk er hvatt til að mæta og styðja gott málefni.

Senda


Leita á vefnum


22. maí 2013
Selfoss

Lærum allt lífið - Fræðslunet Suðurlands




Þetta vefsvæði byggir á Eplica