Um Fjölmennt

Um Fjölmennt

Fjölmennt var stofnuð árið 2002. Menntamálaráðuneyti gerði þjónustusamning við Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands um rekstur fullorðinsfræðslu fyrir fatlað fólk. Starfsseminni var skipuð fimm manna stjórn , hvort félag tilnefndi tvo fulltrúa og Kennaraháskóli Íslanda einn fulltrúa.  Samningurinn var gerður til fimm ára og rann út 31.07.2007.

Samkvæmt þjónustusamningnum hafði Fjölmennt tvíþætt hlutverk ; að sinna námskeiðhaldi fyrir fatlað fólk og að veita ráðgjöf til náms við aðrar menntastofnanir.  Fjölmennt er sjálfseignarstofnun og var gerð skipulagsskrá fyrir starfssemina. Fjölmennt fær fjárframlag sem ákveðið er í fjárlögum hvers árs og fyrir það fé er starfsemin rekin.  Í stefnuskrá Fjölmenntar birtist hugmyndafræði og áherslur í starfseminni.  Þar eru jafnframt tilgreind þau gildi sem leiða eiga starfið hjá stofnuninni.

Nýr þjónustusamningur hefur verið í undirbúningi síðan sá fyrri rann út og var nýr þjónustusamningur undirritaður þann 12.11.2010. Samningurinn tekur gildi 01.01.2011. Sjá má þann samning á heimasíðunni undir liðnum þjónustusamningur.

Fjölmennt fær breytt hlutverk með nýjum þjónustusamningi og verður nú lögð meiri áhersla á ráðgefandi hlutverk stofnunarinnar. Áhersla verður lögð á að styðja fatlað fólk til náms hjá öðrum fræðsluaðilum ásamt eigin námskeiðahaldi. Starfshættir stofnunarinnar koma nú til með að þróast í átt að fyrirkomulagi annarra símenntunarstöðva. Fjölmennt heyrir nú undir lög nr. 27/2010 um framhaldsfræðslu. Þau lög tóku gildi 1. október 2010.

Jafnhliða gerð þjónustusamnings var skipulagsskrá stofnunarinnar endurskoðuð og tekur ný skipulagsskrá gildi 01.01.2011. Sjá má skipulagsskrána á heimasíðunni undir liðnum skipulagsskrá.

Í allri stefnumótun Fjölmenntar er lögð rík áhersla á að fatlað fólk geti stundað símenntun til jafns við aðra þegna samfélagins og hjá sömu aðilum og veita fullorðnu fólki símenntun.

Fjölmennt hefur rekið þrjár starfsstöðvar í Reykjavík, á Akureyri og á Selfossi. Haustið 2009 hófst formlegt samstarf Fjölmenntar og SÍMEY  um námskeiðahald á Akureyri. SÍMEY sér nú um námskeiðahald sem áður var hjá Fjölmennt. Jafnframt hafa verið gerðir samstarfssamningar við símenntunarmiðstöðvarnar á landsbyggðinni. Einnig hafa verið gerðir samstarfssamningar við aðra fræðsluaðila á höfuðborgarsvæðinu.

Árlega eru um 450 þátttakendur á námskeiðum á höfuðborgarsvæðinu , um 80 þátttakendur á Akureyri og um 70 á Selfossi.

Senda




Leita á vefnum


7. febrúar 2012
Allt um Fjölmennt

Fjölmennt skal í öllu starfi sínu leitast við að skipuleggja þjónustu sína þannig að hún efli tengsl notandans við umhverfi sitt í starfi og daglegu lífi, hvort heldur tómstundum eða daglegu starfi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica