Inntöku lokið á vorönn
Nú er inntöku á vorönn að mestu leyti lokið og bréf hafa verið send til umsækenda um tímasetningar námskeiða.
Í nokkrum tilfellum liggja tímasetningar ekki fyrir og verður í þeim tilfellum hringt til umsækenda strax eftir áramót.
Skrifstofa Fjölmenntar er lokuð frá 22. desember. Skrifstofan opnar aftur 3. janúar 2012.
Hægt er að senda athugasemdir vegna námskeiða á netfangið fjolmennt@fjolmennt.is og haft verður samband þegar vinna hefst að nýju hjá Fjölmennt eftir áramót.
Starfsfólk Fjölmenntar óskar þátttakendum á námskeiðum sínum og samstarfsaðilum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Kærar þakkir fyrir samstarfið á liðnu ári.
