Fréttir og tilkynningar
Fréttir og tilkynningar

2.1.2012

Fjölmennt og Múrbrjóturinn

Fjölmennt tók þátt í tveimur verkefnum sem nýverið hlutu Múrbrjótinn, viðurkenningu Landssamtakanna Þroskahjálp og Hvatningaverðlaun ÖBÍ.  Múrbrjóturinn er veittur árlega á alþjóðadegi fatlaðra, þann 3. desember, þeim sem Þroskahjálp telur að hafi rutt fötluðu fólki nýjar brautir til jafnréttis eða aukið skilning samfélagsins á stöðu fatlaðs fólks.

Verkefnin sem Fjölmennt tók þátt í eru eftirfarandi:

Sendiherrar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Vorið 2011 var haldið námskeið á vegum Fjölmenntar, símenntunar- og þekkingarmiðstöðvar, þar sem hópur fólks með þroskahömlun kynnti sér samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks og vann fræðsluefni til kynningar á samningnum fyrir fólk með þroskahömlun. Hópurinn var tilnefndur af Forseta Íslands sérstakir Sendiherrar samningsins og hefur kynnt fötluðu fólki og öðrum áhugasömum samninginn um allt land.

Með okkar augum
Sumarið 2011 voru sýndir í ríkissjónvarpinu sjónvarpsþættirnir “Með okkar augum”. Í þáttunum eru það einstaklingar með þroskahömlun sem sinna dagskrárgerð auk þess að sjá um upptökur og tæknivinnu. Í þáttunum er fjallað um málefni líðandi stundar út frá þeirra augum.

Þess má geta að umsjónarfólk sjónvarpsþáttarins fékk einnig Hvatningarverðlaun ÖBÍ árið 2011.

Senda




Leita á vefnum


23. febrúar 2012
Allt um Fjölmennt

Fjölmennt skal í öllu starfi sínu leitast við að skipuleggja þjónustu sína þannig að hún efli tengsl notandans við umhverfi sitt í starfi og daglegu lífi, hvort heldur tómstundum eða daglegu starfi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica