Námskeið að hefjast hjá samstarfsaðilum Fjölmenntar
Nám-skeiðin Lestur, íslenska og ritun og Sjálf-styrking byrjuðu í gær hjá Náms-flokkum Reykja-víkur og fyrstu kennslu-stundir á tölvu-námskeiðum Tölvu-skólans Promennt voru í morgun. Þetta eru nám-skeiðin Inter-net og Face-book, Tölvan og byrjandinn og Staf-rænar mynda-vélar.
Þátt-takendur á þessum nám-skeiðunum eru tæp-lega þrjátíu. Stærð-fræði sem einnig hefst í dag hjá Náms-flokkunum er nú haldið í annað sinn og var mikil ánægja með það nám-skeið á haust-önninni.

