Starfsemi
Starfsemi
Fjölmennt er símenntunarmiðstöð sem skipuleggur námskeið fyrir fatlað fólk , 20 ára og eldra. Markmiðið er að bjóða fötluðu fólki upp á fjölbreytta símenntun í formi námskeiða að loknu formlegu námi í skólakerfinu. Fjölmennt skal starfa í anda alþjóðlegra samþykkta þar sem fjallað er um fræðslu og menntun fatlaðs fólks svo sem:
- Sáttmála Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2007 um réttindi fatlaðs fólks.
- Salamancayfirlýsingarinnar, einkum 56. og 57 gr.
- Einnig markmiðsgrein laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992, 2 gr.
Ein af megináherslum í starfi Fjölmenntar er að stuðla að því að fatlað fólk njóti símenntunar hjá sömu aðilum og ófatlaðir eftir því sem nokkur kostur er.
Helstu verkefni Fjölmenntar eru:
- Námskeiðahald, sem hefur verið viðamesti flokkurinn.
- Ráðgjöf tengd starfsemi Fjölmenntar m.a. um nám sem stendur til boða hjá öðrum fræðslustofnunum
- Samstarf og stuðningur við aðrar fræðslustofnanir á vettvangi fullorðinsfræðslu
Fjölmennt rekur starfsstöðvar í Reykjavík og á Selfossi. Starfsstöð sem er á Akureyri er nú skipulögð sem samstarfsverkefni Fjölmenntar og Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðarsvæðis (SÍMEY). Gerður var samstarfssamningur í ágúst 2009 um starfssemina.
Fjölmennt hefur gert samstarfssamning við Háskóla Íslands menntavísindasvið um viðbótarstuðning við fólk með þroskahömlun í diplómanámi við skólann.
Fjölmennt er í samstarfi við Þekkingarsetur um félagstengsl og kynímynd um námskeiðin Verum Örugg. María Jónsdóttir er höfundur námsefnisins og stendur fyrir fræðslu fyrir leiðbeinendur á námskeiðunum. www.styrktarfelag.is
Fjölmennt hefur staðið að námskeiði um gerð sjónvarpsþáttar í samstarfi við Kvikmyndaskóla Íslands. Elín Sveinsdóttir er umsjónarmaður námskeiðsins. Lokaafurð er sjónvarpsþáttur þar sem fatlað fólk vinnur að öllum framleiðsluþáttum.
Samskiptanámskeið fyrir seinfæra foreldra um uppeldi barna. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Háskóla Íslands, Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum og Rannsóknarsetur um lífshætti barna og ungmenna. Hanna Björg Sigurjónsdóttir og Hrund Þórarinsdóttir eru umsjónarmenn námskeiðsins.
Umræðuhópar um hagsmunabaráttu fatlaðs fólks eru haldnir hjá Fjölmennt í samstarfi við Átak félag fólks með þroskahömlum og Þroskahjálp.
Fjölmennt er stofnaðili Listar án landamæra og á fulltrúa í stjórn hátíðarinnar. Auk Fjölmenntar eiga Öryrkjabandalag Íslands, Þroskahjálp, Átak og Hitt húsið fulltrúa í stjórn. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar vorið 2010 er Viðar Sigurðsson. List án landamæra hefst 29. april nk. www.listanlandamaera.blog.is
