Stefnuskrá Fjölmenntar
Hlutverk
Fjölmennt er miðstöð símenntunar sem þjónar fötluðu fólki 20 ára og eldri.
Hlutverk Fjölmenntar byggist á markmiðsgrein skipulagsskrár (3. gr.), og einnig á alþjóðlegum samþykktum, svo sem Grunnviðmiðum Sameinuðu þjóðanna, Salamancayfirlýsingunni (einkum gr. 56 og 57) og markmiðsgrein gildandi laga um málefni fatlaðra.
Fjölmennt býður fjölþætta símenntun og ráðgjöf í þeim tilgangi að auka lífsgæði og almenna lífsleikni.
Fjölmennt tryggir þeim einstaklingum, sem ekki eiga kost á sambærilegri þjónustu á öðrum vettvangi forgang að þjónustu. Fjölmennt kemur ekki í stað annarra stofnana né tekur á sig þær skyldur sem á þeim hvíla.
Fjölmennt leitast við að veita þjónustu á landsvísu eftir því sem fjárveitingar leyfa.
Framtíðarsýn
Fjölmennt mun leitast við að byggja upp fjölþætta starfsemi í samræmi við hlutverk sitt.
Í þeirri uppbyggingu verður lögð rík áhersla á að fatlað fólk fái sömu þjónustu og aðrir þjóðfélagsþegnar og hjá sömu aðilum og þjónusta við almenning stendur til boða.
Megingildi Fjölmenntar
Jafnræði
Fatlað fólk fái alla þá fræðslu, ráðgjöf og stuðning, sem getur talist sambærileg við það sem þykir sjálfsagt og nauðsynlegt að fólk fái almennt. Í þessu efni má benda á aðgengi fólks, annars vegar að háskólamenntun og hins vegar að fjölþættri fræðslu, sem tryggð er í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði og gefur vinnandi fólki kost á að endurnýja sig í starfi og daglegu lífi. Jafnræði felst meðal annars í því að fatlað fólk njóti þjónustu hjá sömu aðilum og ófatlaðir eftir því sem nokkur kostur er.
Samskipan
Leitast verði við að skipuleggja starfsemina þannig að hún verði í nánum tengslum og samstarfi við aðra skylda starfsemi á vettvangi fullorðinsfræðslu.
Virðing
Fjölmennt tryggir einstaklingsmiðaða, heildræna og sveigjanlega þjónustu, sem byggist á markvissu samstarfi við notandann og þá aðila sem best þekkja lífssýn hans, þarfir og áhugamál. Þess verði gætt að starfsemi, sem Fjölmennt skipuleggur, falli vel að öðru starfi þeirra, sem þjónustuna nýta.
Fjölbreytni
Starf Fjölmenntar verði skipulagt þannig að sem mest fjölbreytni verði í markmiðum, viðfangsefnum og starfsháttum, með því meðal annars að fræðsla og önnur tilboð einskorðist ekki við það sem býðst innan stofnunarinnar.
Fullgild þátttaka
Fjölmennt skal í öllu starfi sínu leitast við að skipuleggja þjónustu sína þannig að hún efli tengsl notandans við umhverfi sitt í starfi og daglegu lífi, hvort heldur tómstundum eða daglegu starfi.
Metnaður
Fjölmennt skal leitast við að veita góða þjónustu sem hentar öllum og stenst samanburð við það sem best hefur gefist. Starfsemin skal því byggjast á virku gæðastarfi sem tekur tillit til óska og þarfa notandans.
Framþróun
Fjölmennt skal fylgjast vel með umræðu, þróun og rannsóknum, sem snerta málefni fatlaðra og leitast við að tileinka sér nýja þekkingu og viðhorf í starfsemi sinni.
Fjölmennt endurskoðar reglulega þá þjónustu sem hún veitir.
Stefna Fjölmenntar
Stefna Fjölmenntar er að skapa fólki með fötlun möguleika til aukinnar þátttöku í lífi og starfi samfélagsins á við aðra þjóðfélagsþegna. Stefnunni verði framfylgt með fjölþættri og heildrænni þjónustu í formi fræðslu, ráðgjafar, stuðnings og félagsstarfa.
Í allri starfsemi Fjölmenntar skal lögð áhersla á þau megingildi sem hér hafa komið fram, það er jafnræði, samskipan, virðingu, fjölbreytni, fullgilda þátttöku, metnað og framþróun.
Starfsemi Fjölmenntar
Starfsemi Fjölmenntar byggist á þeim megingildum, sem að framan eru talin. Starfsemin er nánar skilgreind undir þjónustustefnu, starfsmannastefnu, stefnu um mat á árangri, og framkvæmdaáætlun.
Þjónustustefna
Helstu verksviðum Fjölmenntar er skipt í þrjá meginþætti:
- Námskeiðahald, sem er viðamesti flokkurinn. Áhersla er lögð á almenna fræðslu, en einnig á fræðslu sem tengist atvinnumálum, búsetumálum, félagsstörfum líkamsrækt og heilsueflingu, list- og verkgreinum, tómstundum og öðrum þáttum sem notendur telja mikilvæga.
- Ráðgjöf tengd starfsemi Fjölmenntar m.a. um nám sem stendur til boða hjá öðrum fræðslustofnunum
- Samstarf og ráðgjöf við aðrar fræðslustofnanir á vettvangi fullorðinsfræðslu
Í ljósi þessara áherslna er verkefnum skipað saman á svið samkvæmt tillögu framkvæmdastjóra og skal sú samskipan endurskoðuð á minnst tveggja ára fresti.
Starfsmannastefna
Fjölmennt þarf að hafa á að skipa starfsfólki með mismunandi menntun og reynslu. Hún skal móta sér skýrar siðareglur og gera áætlun um starfsþróun og símenntun. Fjölmennt vill leitast við að skapa starfsumhverfi, sem laðar að fólk með góða menntun og sérhæfingu til að þjóna fötluðu fólki.
Mat á árangri
Í ljósi hlutverks, framtíðarsýnar, megingilda og starfsramma eru mótuð viðmið um mat á árangri starfseminnar. Séð er til þess að notendur og starfsfólk þekki þessi viðmið, eftir því sem við á, enda sé viðráðanlegt matskerfi þróað í ljósi þeirra. Um matskerfið er fjallað í framkvæmdaáætlun hverju sinni.
Framkvæmdaáætlun
Framkvæmdastjóri gerir, á grundvelli rammatillagna stjórnar, framkvæmdaáætlun til tveggja ára í senn í samræmi við stefnu Fjölmenntar. Þessi framkvæmdaáætlun skal endurskoðuð árlega.
Stefna Fjölmenntar skal vera í stöðugri þróun og endurskoðun.
Samþykkt á fundi stjórnar Fjölmenntar 20. febrúar 2004.
