Stjórn og rekstur
Fjölmennt er sjálfseignarstofnun með þjónustusamning við mennta- og menningarmálaráðuneyti sem var undirritaður 12. nóvember 2010. Fjölmennt vinnur eftir skipulagsskrá sem upphaflega var gerð var árið 2002 en endurskoðuð í tengslum við gerð nýs þjónustusamnings árið 2010. Nýr þjónustusamningur og skipulagsskrá taka gildi 01.01. 2011. Fjölmennt fær sitt rekstrarfé á fjárlögum ár hvert. Mennta- og menningarmálaráðuneyti er fagráðuneyti Fjölmennta og þangað skilar Fjölmennt skýrslum og greinargerðum um starfssemina ár hvert samkvæmt þjónustusamningi.
Fjölmennt heldur ársfund í april ár hvert og skal á honum gerð grein fyrir starfi Fjölmenntar og kynntir endurskoðaðir ársreikningar. Þar skal einnig tilnefning löggilts endurskoðanda, stjórnarmanna og varamanna í stjórn fara fram. Auk stjórnarmanna eiga rétt til setu á ársfundi með málfrelsi og tillögurétt þrír fulltrúar frá Landssamtökum Þroskahjálpar og þrír fulltrúar frá Öryrkjabandalagi Íslands.
Stjórn Fjölmenntar er skipuð eftirfarandi aðilum;
- Bjarni Kristjánsson, stjórnarformaður tilnefndur af Landssamtökunum Þroskahjálp.
- Vilborg Jóhannsdóttir,varaformaður tilnefnd af Háskóla Íslands - menntavísindasviði
- Þorsteinn Jóhannson, ritari tilnefndur af Öryrkjabandalagi Íslands.
- Jarþrúður Þórhallsdóttir tilnefnd af Landssamtökunum Þroskahjálp.
- Vilmundur Gíslason, meðstjórnandi tilnefndur af Öryrkjabandalagi Íslands.
Varamenn í stjórn Fjölmenntar
- Elsa Sigríður Jónsdóttir tilnefnd af Landssamtökunum Þroskahjálp
- Jón Torfi Jónasson tilnefndur af Landssamtökunum Þroskahjálp
- Hjördís Anna Haraldsdóttir tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands
- Sigrún Gunnarsdóttir tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands
- Hróbjartur Árnason tilnefndur af Háskóla Íslands, menntavísindasviði.
Framkvæmdastjóri
María Hildiþórsdóttir
mariah@fjolmennt.is
Sími; 5301300
