Þjónustusamningur

Þjónustusamningur

 1. gr.

Samningsaðilar.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti kt. 460269-2969, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og Fjölmennt, símenntunar- og þekkingarmiðstöð kt. 671010-1670, Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík, gera með sér eftirfarandi þjónustusamning á grundvelli heimildar í 30. gr. laga nr. 88/1997 um fjárreiður ríkisins og reglugerðar nr. 343/2006 um samninga um rekstrarverkefni sem ráðuneyti og ríkisstofnanir gera til lengri tíma en eins árs.

2. gr.

Umsjónarmenn/tengiliðir.
Framkvæmdastjóri Fjölmenntar hefur umsjón með samningnum fyrir hönd Fjölmenntar en mennta- og menningarmálaráðuneyti tilkynnir hvaða starfsmaður þess kemur fram fyrir hönd þess vegna samningsins.

3. gr.

Samningsgögn.
Þjónustusamningi þessum fylgja eftirfarandi gögn:

Fylgiskjal 1 Forsendur eldri þjónustusamnings og nýjar áherslur.

Fylgiskjal 2 Nánar um markmið, markhóp og umfang sbr. 4. gr. samningsins.

Fylgiskjal 3 Inntaka og forgangsviðmið sbr. 4. grein samningsins.

Fylgiskjal 4 Nánar um þjónustu sbr. 5. gr. samningsins.

Fylgiskjal 5 Kynning á starfsemi Fjölmenntar.

Fylgiskjal 6 Skipulagsskrá Fjölmenntar, símenntunar- og þekkingarmiðstöðvar,

dagsett 3. júní 2010 en tekur gildi 1. janúar 2011.

4. gr.

Markmið, markhópur og umfang.
Meginmarkmið þjónustusamnings þessa er að fötluðu fólki, 20 ára og eldri, bjóðist fjölbreytt símenntun í formi náms og námskeiða að loknu formlegu námi í skólakerfinu.

Lögð er áhersla á að veita fötluðu fólki tækifæri til að nýta sér eins og frekast er kostur almennt námsframboð á símenntunarmarkaði. Með því skal leitast við að framfylgja hugmyndafræði samskipunar og blöndunar um að fatlaðir eigi sama aðgengi og aðrir að almennri þjónustu í samfélaginu.

Stefnt er að því að gefa sem flestum kost á símenntun við hæfi og að möguleikar þessa hóps til að taka þátt í símenntun verði eftir því sem unnt er áþekkir og hjá öðrum.

Umfang þjónustunnar er skilgreint í árlegum áætlunum sem Fjölmennt skilar til ráðuneytisins sbr. 8. gr. samningsins.

5. gr.

Þjónusta.
Fjölmennt greiðir aðallega á þrennan hátt fyrir því að fatlað fólk geti tekið þátt í símenntun með því að veita eftirtalda þjónustu.

1. Veitir ráðgjöf.

  • Veita öðrum símenntunaraðilum ráðgjöf um skipulagningu og framkvæmd náms fyrir fatlað fólk, bæði nám sem er sérstaklega sniðið að þörfum þess og almennt nám sem það gæti stundað með öðrum.
  • Veita fötluðu fólki ráðgjöf við að velja og nýta sér námstilboð á vegum annarra símenntunar- og fræðslustofnana.

2. Starfar með öðrum símenntunaraðilum.

  • Stuðla að því að aðrir símenntunaraðilar bjóði námskeið sem henta fötluðu fólki og aðstoða við að setja upp slík námskeið til að auka fjölbreytileika og gæði.
  • Vinna að því að námstilboð séu í samræmi við hugmyndafræði samskipunar og blöndunar.
  • Niðurgreiða námskeið þannig að fatlað fólk greiði ekki meira fyrir námið en aðrir, að teknu tilliti til styrkja til þátttakenda.
  • Fylgjast með gæðum náms sem þessum hópi er boðið.
  • Stefna að samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins með það að leiðarljósi að auka samlegðaráhrif.

3. Heldur námskeið.

  • Halda sértæk námskeið fyrir þá sem geta ekki nýtt sér námstilboð annarra símenntunaraðila eða að framboð á námskeiðum er ekki fyrir hendi.

6. gr.

Starfshættir.
Í 3. tl. 5. greinar samnings þessa er gert ráð fyrir að Fjölmennt standi að námsframboði á eigin vegum. Við skipulagningu og uppbyggingu þeirra námskeiða ber að leggja áherslu á fjölbreytni og sveigjanleika. Þar er m. a. átt við sveigjanleika í tímasetningu námskeiða, t. d. dag-, síðdegis- og kvöldnámskeið. Jafnframt ber Fjölmennt að haga ráðningu starfsmanna með þeim hætti að það falli sem best að kröfum um sveigjanleika og anda samnings þessa.

7. gr.

Efnislegar afurðir.
Fjölmennt setur á vefsíðu sína ýmis gögn eins og kennsluefni, leiðbeiningar og áætlanir svo efnið megi verða aðgengilegt sem flestum vegna fræðslu fyrir fatlað fólk almennt.

8. gr.

Samskipti og eftirlit.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur eftirlit með starfsemi Fjölmenntar. Í því sambandi hefur það aðgang að öllum gögnum hjá Fjölmennt sem máli skipta, þar á meðal fylgiskjölum, skýrslum, bókum og bréfum. Þjónustusamningurinn og umsamin verkefni eru háð eftirliti Ríkisendurskoðunar í samræmi við lög nr. 86/1997. Fjölmennt heldur ráðuneytinu upplýstu um alla mikilvæga þætti í starfseminni auk þess sem samningsaðilar eiga með sér fundi um einstaka mál eftir því sem þurfa þykir.

Á árlegum fundi, sem tengiliður í ráðuneytinu boðar til og framkvæmdastjóri Fjölmenntar situr ásamt fulltrúum stjórnar, skal fjalla um álag og þjónustuþörf, framkvæmd samningsins á liðnu tímabili og starfs- og fjárhagsáætlun Fjölmenntar fyrir næsta ár og til lengri tíma. Fjölmennt skilar ráðuneytinu skýrslu fyrir fundinn um þessi atriði. Hún fjalli enn fremur í texta og tölum um starfsemi á liðnu ári, notendur þjónustunnar, námsframboð, faglegar áherslur, umfang, gæði og fjármál Fjölmenntar. Skýrsluna skal jafnframt birta á vefsíðu Fjölmenntar.

9. gr.

Fjármál.
Greiðslur til Fjölmenntar vegna samningsins eru háðar ákvörðun Alþingis um fjárveitingu á fjárlagalið 02-441, Fullorðinsfræðsla fatlaðra. Í fjárlögum 2010 er veitt 243.8 m.kr. í fjárveitingu á liðnum og gerir ráðuneytið ráð fyrir að þótt það sæki um álíka háa fjárhæð á næstu árum megi búast við verulegri raunlækkun vegna aðhalds í ríkisútgjöldum.

Fjölmennt getur komið á framfæri við ráðuneytið rökstuddum óskum um fjárveitingar við undirbúning fjárlaga á fyrstu mánuðum hvers árs. Árlegt framlag ráðuneytisins greiðist 20. hvers mánaðar með jöfnum greiðslum.

Fjölmennt skilar ráðuneytinu óumbeðin í desember, eða þegar ráðuneytið kallar eftir, starfs- og fjárhagsáætlun fyrir komandi fjárhagsár. Í henni skal greina eftir föngum á milli ráðgjafar, eigin námskeiðahalds og framlaga til námskeiða hjá símenntunaraðilum. Sömu aðgreiningu skal haldið í fjárhagsbókhaldi Fjölmenntar.

Jafnframt skilar Fjölmennt ráðuneytinu endurskoðuðum ársreikningi að fjárhagsárinu liðnu þar sem m.a. sama aðgreining er sýnd.

Óheimilt er Fjölmennt að greiða út arð og skal allur rekstrarafgangur renna til uppbyggingar á starfsemi sem þjónar samningi þessum. Einnig er Fjölmennt óheimilt að skuldsetja reksturinn án skriflegrar heimildar ráðuneytisins.

Stjórn Fjölmenntar skal leitast við að afla viðbótarfjár til verkefna stofnunarinnar hjá sjóðum og eftir þeim fjármögnunarleiðum sem kunna að vera fyrir hendi vegna símenntunar. Slíkar tekjur skerða ekki árlegt framlag til samningsins í fjárlögum. Gera skal grein fyrir slíkum  tekjum ef einhverjar eru í árlegri skýrslugerð til ráðuneytisins sbr. 8. gr.

10.  gr.

Lausn ágreinings.
Ef upp kemur ágreiningur vegna samnings þessa skulu aðilar leitast við að leysa hann án atbeina dómstóla. Ef það tekst ekki skulu mál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

11.  gr.

Endurskoðun og gildistími.
Samningur þessi gildir frá 1. jan. 2011 til 31. des. 2013. Við gerð samningsins er stefnt að því að hann verði endurnýjaður á þriggja ára fresti með viðeigandi breytingum. Miðað er við að endurskoðun hefjist eigi síðar en 6 mánuðum fyrir lok gildistímans. Úttekt á samningnum getur verið hluti af endurnýjun hans.

Samningsaðilar mun á samningstímanum ræða mögulega aðlögun á þjónustu samkvæmt 5. gr. að lögum um framhaldsfræðslu nr. 27/2010.

Af samningi þessum eru gerð tvö samhljóða frumrit og heldur hvor aðili sínu.

Reykjavík, 12. nóvember 2010.

 

 

Senda




Leita á vefnum


18. maí 2012
Allt um Fjölmennt

Fjölmennt skal í öllu starfi sínu leitast við að skipuleggja þjónustu sína þannig að hún efli tengsl notandans við umhverfi sitt í starfi og daglegu lífi, hvort heldur tómstundum eða daglegu starfi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica