Fræðsla
Hér verður getið þeirrar fræðslu sem boðið hefur verið upp á starfsárið 2009-2010 fyrir starfsfólk hjá Fjölmennt.
Námskeið í upphafi starfsárs fyrir alla starfsmenn Fjölmenntar: Vinnugleði er valkostur sem Steinunn Stefánsdóttir hjá Starfsleikni skipulagði.
Haustönn 2009: Ráðgjöf frá Svanhildi Svavarsdóttur til einstakra kennara og kennarahópa : Svanhildur hélt tvö fræðsluerindi um einkenni einhverfu og kennsluaðferðir TEACCH sem henta nemendum með einhverfu.
Vorönn 2010: Áframhaldandi ráðgjöf sem Svanhildur Svavarsdóttir veitti kennurum um kennslu einhverfra nemenda sem stunda nám í töluvkennslu, tónlist, myndlist og heimilisfræði. Ráðgjöfin fór fram í fræðslu fyrir starfsmannahópinn og einstaklingsbundinni aðstoð fyrir nemandann og kennara hans.
Jarþrúður Þórhallsdóttir veitti kennurum einnig ráðgjöf og stuðning við að útbúa skipulagðar kennsluaðstæður og gera þær myndrænar.
Eftirtalin tölvunámskeið voru haldin á vorönn 2010.
Sigurður Fjalar Jónsson var með tölvunámskeið fyrir kennara um aukna notkun Smart- board töflu ,myndbönd í tengslum við forritið Power point og fleiri gagnlega þætti í notkun tölva við kennslu hjá Fjölmennt.
Guðrún Hallgrímsdóttir var með námskeið í tölvukennslu fyrir fatlað fólk og kennslu í forritinu Publisher og Board- maker. Þessir þættir eru jafnframt mikilvægir við kennslugagnagerð og myndræna framsetningu efnis.
Áhersla hefur verið lögð á að efla námstilboð fyrir mikið fatlað fólk í starfsemi Fjölmenntar. Starfshópur sem samanstóð af fjórum kennurum fór í námsferð til Noregs í nóvember. Ferðastyrkur fékkst úr þjóðhátíðarsjóði Norðmanna fyrir ferðakostnaði en Fjölmennt styrkti kennara til farararinnar að öðru leyti. Verið er að vinna að skipulagningu fjölþættari kennslutilboða fyrir mikið fatlað fólk.
