Ganga og jóga í náttúrunni
Göngum um stund þar sem hver og einn gengur í sínum takti og á sínum hraða.
Finnum okkur góða laut til að gera léttar jógaæfingar og teygjur - hver og einn á sínum forsendum.
Aðalmarkmiðið er að njóta samveru með góðu fólki í fallegri náttúru.
Námskeiðið er 1 skipti, 2 klukkustundir og verður haldið 19. maí.
Umsóknarfrestur er til 6. maí.
Nánari upplýsingar sendar til þátttakenda.