jóla-hjól

Er ekki tilvalið að koma sér í jólaskap með því að mæta og hjóla sig inn í jólin með taktföstum jólalögum?

Þeir sem vilja vinna sér inn fyrir aukaskammt af jólasmákökum þá er þetta svarið.

Til að halda stemningunni réttri verður einungis spiluð hressandi jólatónlist.

Að lokum verða teygjur og slökun. 

Námskeiðið verður haldið á tímabilinu 9. - 17. desember, nánari tíma- og dagsetning kemur síðar.

Reynt verður eftir fremsta megni að koma til móts við þarfir þátttakenda með tímasetningu námskeiðs.

Staður: Íþróttahús fatlaðra
Verð: 1.000
Tími: 1 skipti
Eydís Hulda Jóhannesdóttir