Skapaðu skemmtilegt myndefni með snjalltækinu

Langar þig að læra að gera skemmtilegar myndir og skapandi myndbönd? Á þessu námskeiði lærir þú að nýta einföld og ókeypis forrit sem tengjast samfélagsmiðlum til þess að gera skapandi myndefni, bæði ljósmyndir og myndbönd.

Notast verður við snjallsíma eða spjaldtölvu á námskeiðinu. Þátttakendur þurfa ekki að eiga aðgang að samfélagsmiðlum og geta unnið myndefni á snjalltæki Fjölmenntar. Þeir geta einnig notað sitt eigið snjalltæki og eigin aðgang að Instagram, SnapChat eða TikTok.

Boðið verður upp á að deila afrakstri námskeiðsins með vinum og vandamönnum eftir því hvað hentar hverjum og einum.

Námskeiðstímabil: 18. maí - 30. maí. Nánari tíma- og dagsetning kemur síðar.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki.

Staður: Fjölmennt
Verð: 1500
Tími: 1 skipti
Helle Kristensen
Margrét Norðdahl