Sumarjóga
Í sumarjóga förum við í mjúkar jógaæfingar, gerum öndunaræfingar, fáum góða slökun og hugleiðum.
Rannsóknir sýna að jóga og núvitund:
- Hafa góð áhrif á líkamlega og andlega líðan
- Draga úr streitu og kvíða
- Auka jákvæðni og lífsgleði
- Gefa okkur styrk og orku
Jóga er fyrir allskonar fólk og allskonar líkama.
Allar æfingar eru aðlagaðar að hverju og einu.
Námskeiðið er eitt skipti.
Námskeiðstímabil sumarnámskeiðanna er 30.maí - 5.júní og verður nánari tímasetning auglýst síðar.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki.
Umsóknarfrestur er til 30.apríl.