Sumarlegir útiblómapottar
Á þessu námskeiði ætlum við að útbúa sumarlega blómapotta fyrir pallinn, garðinn eða svalirnar.
Notast verður við málningu, bursta, stensla og svampa. Hægt verður að búa til gamalt og veðrað útlit á pottana í sumarlegum litum.
Námskeiðstímabil: 18. maí - 30. maí. Nánari tíma- og dagsetning kemur síðar.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki.