Sumarsmellur

Langar þig að búa til þinn eigin sumarsmell?

Þátttakendur fá tækifæri til að semja sinn eigin sumarsmell á spjaldtölvu og fá aðstoð við að deila laginu á samfélagsmiðlum eða tölvupóstformi ef áhugi er fyrir því.

Þátttakendur eru hvattir til að mæta með eigið snjalltæki en einnig er boðið upp á að vinna á tæki Fjölmenntar og deila afrakstrinum þaðan.

Námskeiðstímabil: 21. maí - 1. júní. Nánari tíma- og dagsetning verður ákveðin síðar.

Reynt verður að koma til móts við óskir þátttakenda um tímasetningu, vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími dags hentar alls ekki.

Staður: Fjölmennt
Verð: 1.500
Tími: 1 skipti
Helle Kristensen