Syngjandi og spilandi inn í sumarið
Þetta er námskeið fyrir þá sem vilja dusta rykið af sumarlögunum og æfa þau í söng eða á hljóðfæri.
Á námskeiðinu syngur lítill hópur saman nokkur lög við undirleik kennara.
Lögð er áhersla á að njóta tónlistar í notalegu umhverfi.
Námskeiðstímabil: 18. maí - 30. maí. Nánari tíma- og dagsetningar koma síðar.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki.