Upplifun og eldhússtörf

Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa takmarkaða hreyfi- eða verkgetu og hafa ánægju af því að vera í eldhúsi við matargerð.

Búin er til máltíð og allir borða saman. Áhersla er á samveru og samtal. 

Framreidd er máltíð, borðað saman og gengið frá. Áhersla er lögð á að taka þátt í matreiðslu sem félagslegri athöfn.
Megináhersla er á virkni og félagslega samveru og tjáskipti.
Myndrænar einfaldar uppskriftir. Þátttakendur fylgja myndrænni athafnaröð.
Þátttakendur eru hvattir til einfaldrar frásagnar, hvað er verið að gera, hver gerir hvað, hvað var gert o.s.frv.
Einnig er áhersla á tjáskipti milli þátttakenda, s.s. að veita athygli, taka tillit, bíða, rétta öðrum, hvort heldur sem er með óformlegum eða formlegum tjáskiptum. Einfaldar frásagnir í formi mynda og texta/tals með aðstoð snjalltækja.

Kennt er einu sinni í viku, 1-2 kennslustundir í senn.

Reynt verður að koma til móts við umsækjendur varðandi tímasetningar. Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Fjölmennt
Verð: 13.700-17.900
Tími: 7 vikur
Hjördís Edda Broddadóttir
Mona Guttormsen