Vorið-vatnslitamálun

Á þessu námskeiði fylgjumst við með því hvernig umhverfið breytist og vorið tekur á sig mynd. Við málum vatnslitamyndir af trjágreinum með brumi, krókusum, páskaliljum og erum vakandi fyrir breytingum náttúrunnar í hverri viku. 

Við æfum okkur í litablöndun og skissum upp og málum laufblöð, plöntur og trjágreinar með vatnslitum á vatnslitapappír. Stefnt verður að því að fara eina vettvangsferð í Grasagarðinn til að skoða, mála og njóta vorsins. 

Námskeiðið er einu sinni í viku, 2-2,5 kennslustundir í senn í 5-6 vikur. 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími hentar alls ekki. 

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember.

Staður: Fjölmennt
Verð: 11.400
Tími: 6 vikur
Nanna Eggertsdóttir