Jólagjöf í krukku

Á námskeiðinu verður búin til jólagjöf í krukku.  
Um er að ræða hráefni að jólasmákökum sem er tilvalin jólagjöf til þeirra  
sem eiga allt.  

  • Þátttakendur fá krukku, þurrt hráefni, uppskrift og skreytiborða til að búa til þessa fallegu gjöf. 

  • Í tímanum verður uppskriftin einnig bökuð og smákökurnar smakkaðar. 

  • Uppskrift að gæðastund til að njóta saman. 

 

  • Námskeiðið verður haldið á tímabilinu 11. til 19. desember. Nánari tímasetning auglýst síðar.
  • Námskeiðið er í eitt skipti, 1-2 kennslustundir.
  • Umsóknarfrestur er til 20. nóvember.

 

Reynt verður eftir fremsta megni að koma til móts við þarfir þátttakenda með tímasetningu námskeiðsins.

Staður: Fjölmennt
Verð: 2.800-5.000
Tími: Eitt skipti