Jólarapp
Á námskeiðinu munu þátttakendur, búa til og flytja texta sem tengist jólunum.
- Framlag hvers og eins getur verið allt frá einu orði eða hljóði og upp í heilar setningar eða ljóð.
- Við búum einnig til trommutakt á snjalltæki eða notum tilbúinn takt sem undirleik.
- Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja taka þátt í skapandi vinnu með takti og texta.
Námskeiðið er í eitt skipti og verður kennt á tímabilinu 11. til 19. desember. Nánari tímasetning síðar.