Jólaskreyting
Viltu búa til fallega jólaskreytingu handa þér eða til að gefa öðrum ?
Á þessu námskeiði lærir þú að setja saman einfalda jólaskreytingu í blómapott eða á bakka að eigin vali úr greni, hýasintu, kerti eða með lítilli ljósaseríu.
- Námskeiðið er í eitt skipti í 2 kennslustundir.
- Námskeiðið verður haldið á tímabilinu 11. til 19. desember. Nánari tímasetning auglýst síðar.
- Umsóknarfrestur er til 20. nóvember.
Reynt verður eftir fremsta megni að koma til móts við þarfir þátttakenda með tímasetningu námskeiðsins.