Draumafangari og vegghengi

Draumafangarar eru fallegir til skrauts og geta verið í öllum regnbogans litum. Sagan segir að þeir fangi góða drauma. Einnig er búið til einfalt vegghengi úr borðum, böndum og perlum.

Þetta námskeið hentar þeim sem hafa gaman af handavinnu sem felur í sér að vefja, binda og þræða.

Námskeiðið er 8 skipti, 2 - 3,5 kennslustundir í senn.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið verða send eftir miðjan desember.

Staður: Fjölmennt
Verð: 16.700 - 22.000
Tími: 8 vikur
Nanna Eggertsdóttir