Gítar / Bassi / Ukulele

Námskeið í gítar/bassa/ukulele-leik. 

Á námskeiðinu er unnið með eftirtalda þætti:

  • Kennt er eftir nótum, bókstöfum, litum og/eða heyrn eftir því sem hentar hverjum og einum.
  • Hugtök og grunnþætti tónlistar.

Mælt er með að þátttakendur eigi gítar (bassa eða ukulele) til þess að æfa sig á heima en námskeiðið er einnig fyrir þá sem vilja prófa hvort hljóðfærið henti þeim.

Námskeiðið er kennt í einka eða hóp-kennslu eftir þörfum þátttakenda.

Námskeiðið getur hentað þeim sem vilja undirbúa sig fyrir áframhaldandi tónlistarnám eða þátttöku í tónlistarstarfi.

Námskeiðið er einu sinni í viku, 1 kennslustund í senn.

Vakin er athygli á að hægt er að sækja um fræðslu um aðstoð við hljóðfæraleik fyrir starfsfólk og aðstandendur þátttakenda á þessu námskeiði.

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.

Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.

Staður: Fjölmennt
Verð: 8.700
Tími: 7 vikur