Slökun í vatni fyrir jólin

Námskeiðið er fyrir þá sem njóta þess að vera í vatni. Markmiðið er að fræðast um og kynnast samfloti og þeim áhrifum sem það hefur.
Í lok tímans verður samvera í heitum potti og boðið upp á heilsudrykk og andlitsmaska fyrir þá sem það vilja.
Námskeiðið fer fram í sundlaug Endurhæfingar í Kópavogi.

Staður: Sundlaug Endurhæfingar
Verð: 2.500
Tími: 2 klukkustundir
Ásdís Guðmundsdóttir