Sjálfsstyrking / Valdefling
Fjármálin mín
Námskeið fyrir þá sem vilja læra meira um peninga og fá betri yfirsýn yfir fjármálin sín.
Fræðsla og tjáning
Þátttakendur fræðast um það sem þau hafa áhuga á og fá möguleika á að sýna öðrum hvað þau vita og hugsa.
Námskeiðið er sérstaklega fyrir einhverft fólk sem hefur lítið eða ekkert talmál.
Geðheilsa og leiðir til betra lífs
Langar þig að læra um geðheilsu og leiðir til að styrkja og hugsa vel um sig?
Notendaráð
Vilt þú hafa áhrif á líf þitt?
Á þessu námskeiði er fræðsla fyrir þá sem vilja vera í notendaráði.
Samskipti kynjanna og kynfræðsla
Á námskeiðinu er fjallað um samskipti kynjanna, heilbrigð sambönd og kynlíf.
Námskeiðið er kynjaskipt, gert er ráð fyrir sér námskeiði fyrir konur og öðru fyrir karla.
Segjum sögur
Allir geta sagt sögu.
Á námskeiðinu fá þátttakendur tækifæri til að segja sögur; sögur úr hversdagslífinu, brandarar, skapandi sögur, sögur úr menningunni.
Valdefling – Virkni - Fjölbreyttar tjáskiptaleiðir
Námskeiðið er sérstaklega fyrir fólk sem þarf mikinn stuðning í daglegu lífi.
Við styrkjum sjálfsmynd og vald á eigin lífi með því að vera saman, vinna verkefni og tjá okkur um áhugamál. Við getum tjáð okkur á marga vegu, með tali, táknum, myndum og fleira.