Íslenska fyrir fólk af erlendum uppruna
Þetta er námskeið fyrir fólk af erlendum uppruna með þroskahömlun sem vilja byrja að læra íslensku sem annað mál eða bæta sig í íslensku.
Um einstaklingsmiðað nám verður að ræða sem verður skipulagt í samræmi við áhugasvið, hæfni og getu. Áhersla verður lögð á orðaforða daglegs lífs, hlustun og talmál með fjölbreyttum aðferðum.
Þátttakendur fá einnig fræðslu og innsýn í íslenska menningu.
Stuðst verður við Námskrá í íslensku fyrir útlendinga. Sjá námskrá.
Í lok námskeiðs verður gerð námsferilsmappa með þeim verkefnum sem unnið var að til að viðhalda þeirri þekkingu sem náðist á námskeiðinu og greiða leið að frekara námi í íslensku fyrir útlendinga.
Námskeiðið er tvisvar í viku í 7. vikur eða einu sinni í viku í 14. vikur.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.