Setti námskeið í körfu

Spænska hjá Mími

Námskeiðið er ætlað byrjendum og þeim sem lengri eru komnir í spænsku.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á málnotkun, orðaforða, talmál og ritun. 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukna tilfinningu fyrir spænsku og auki við orðaforða sinn, geti skilið  texta og fyrirmæli og fái þjálfun í að geta tjáð sig á spænsku og náð betri tökum á framburði.

Viðfangsefni verður aðlagað eftir óskum og áhuga þátttakenda hverju sinni.

Námskeiðið er í  3 kennslustundir í senn í 10 vikur. Nánari tímasetning síðar.

Kennt er tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:00-19:00

Umsóknarfrestur er til 16. júní.  

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar. 
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.  

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst. 

 

 

Staður: Mímir símenntun
Verð:
Tími: 10 vikur