Sundþjálfun
Sundþjálfun hentar vel þeim sem eru vatnshræddir, óöryggir í vatni eða vilja einfaldlega rifja upp sundtökin. Áhersla verður á að hver og einn njóti sín á sínum forsendum og verður námskeiðið einstaklingsmiðað.
Farið verður m.a. í
- hvernig við getum nýtt okkur flot sem slökun
- hvernig líkaminn bregst við þegar við hreyfum okkur í vatni
- hvernig við öndum þegar við gerum sundtökin
- hvernig við förum með andlitið í kaf í sundtökunum,
- Sundtökin þ.e. handa og fótahreyfingar í bringusundi og baksundi,
Kennt verður á haustönn 2022
8 skipti - 1 sinni í viku - 1 kennslustund í senn
Tími: Auglýst síðar
Tímabil: Auglýst síðar