Skúli Steinar Pétursson - minning

Skúli á hljómsveitaræfingu
Skúli á hljómsveitaræfingu

Fyrir nokkru bárust okkur þær fregnir að Skúli Steinar Pétursson væri látinn. Við hér í Fjölmennt minnumst Skúla Steinars sem mikils baráttumanns fyrir námstækifærum fyrir fatlað fólk. Hann tók þátt í mörgum frumkvöðlaverkefnum með okkur í Fjölmennt og lét til sín taka í baráttuhreyfingunni. Það munaði svo sannarlega um hans framlag.

Skúli var mikill talsmaður réttinda fatlaðs fólks og tók þátt í ýmsum frumkvöðlaverkefnum hér í Fjölmennt sem og annars staðar. Hann var í fyrsta hópi þeirra sem útskrifaðist úr diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við HÍ. Áður hafði hann skrifað greinar og lagt áherslu á mikilvægi þess að fötluðu fólki stæði til boða nám á háskólastigi.

Skúli var einnig með fyrstu umsjónarmönnum sjónvarpsþáttarins "Með okkar augum," sem byrjaði sem námskeið í þáttagerð í Fjölmennt. Hann var einn af sendiherrum Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, verkefni sem var sett á laggirnar í samstarfi við Þroskahjálp og síðar Velferðarráðuneytið. Verkefnið var virkt á árunum 2011-2019, þar sem sendiherrarnir kynntu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og unnu einnig með réttindagæslunni. Skúli var sérstakur baráttumaður fyrir aðgengi að námi, sérstaklega háskólanámi. Verkefnið hlaut Múrbrjótinn árið 2011.

Skúli var einnig öflugur meðlimur í hljómsveit sem starfrækt var í Fjölmennt og spilaði á mörgum tónleikum.

Við vottum fjölskyldu og öðrum ástvinum Skúla dýpstu samúðarkveðjur.