Samstarf við Opna Háskólan í Reykjavík

Hluti hópsins ásamt Úlfi kennara sínum
Hluti hópsins ásamt Úlfi kennara sínum
Á dögunum lauk 8 vikna námskeiði í Tölvuleikjagerð með Scratch sem haldið var í samstarfi við Opna háskólan í Reykjavík. 
 
Þátttakendur sýndu mikinn áhuga og sköpunargleði í gegnum námskeiðið og hönnuðu fjölbreytta og vandaða tölvuleiki.
Að námskeiði loknu fengu þau viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku sína og góðan árangur.
 
Kennari námskeiðsins var reynsluboltinn Úlfur Atlason, þjálfari og verkefnastjóri hjá Skema. Samstarfið var einstaklega farsælt og ánægjulegt að geta boðið uppá slíkt gæða nám í samstarfi við HR.