Sýnendur á list án landamæra
Á síðast liðnum vikum hefur sýningin Furðufuglar á hugarflugi staðið yfir í Gerðubergi á vegum listahátíðarinnar List án landamæra. Sýningunni er sýningarstýrt af Elínu SM Ólafsdóttur og Kolbeini Jóni Magnússyni myndlistarfólki.
Meðal sýnenda á hátíðinni er frambærilegir listamenn sem stunda nám hjá Fjölmennt
Ármann Kummer (f.1981) er búsettur í Reykjavík. Hann vinnur aðarlega með skúlptúr og málverk í myndlist og sækir innsblástur í náttúruna, fjöruna og hraun. Verk hans einkennast af efniskennd og hafa verið sýnd á sýningum m.a. í Gerðubergi, Kaffi Milanó, Bókasafni Árbæjar og List án landamæra. Ármann hefur sótt námskeið í myndlist í Fjölmennt. Með verkum sínum vill hann búa til ógleymanlega list
Garðar Reynisson býr og starfar í Reykjavík en bernskuslóðir hans á Akranesi skipa stóran sess í lífi hans og listsköpun. Hann sækir námskeið í myndlist hjá Fjölmennt og hefur þróað með sér persónulegan og einlægan stíl sem endurspeglar fjölbreytt áhugamál hans og lífsreynslu
Garðar sýnir verkið "Kaffi og steypa". Verkið saman stendur af kaffibolla sem unnin er með málingu á tréplötu og skúlptúr af marengstertu sem Garðar kallar steypu.
Til hamingju með glæsilega sýningu Garðar, Ármann og aðrir sýnendur!
