Til hamingju Listvinnslan
Til hamingju með sýninguna í Ásmundarsal Listvinnslan
Listvinnslan er listhópur hátíðarinnar Listar án landamæra árið 2026!
Listvinnslan hefur s.l. annir verið með námskeið í samstarfi við Fjölmennt þar sem þátttakendur vinna að list sinni og fá tækifæri til þess að kynnast nýjum leiðum til þess að vinna að list sinni.
Námskeiðin hafa verið mjög vinsæl og frábær vettvangur listafólk til þess að finna sína rödd.
Listvinnslan setti í vor upp sýninguna Ómur í Listasafni Samúels í Selárdal á Listahátíð í Reykjavík. Sýningin er nú komin á Ásmundarsafn og hvetjum við ykkur öll til þess að fjölmenna á opnun sýningarinnar n.k. laugardag 14.nóvember kl 15 í Ásmundarsafni.
Um Listvinnsluna:
Listvinnzlan er skapandi vettvangur á sviði inngildingar, menningar, menntunar og lista.
Markmið Listvinnzlunar eru að vinna að inngildandi lista-, menningar- mennta-, og atvinnulífi þar sem öll tilheyra. Listvinnzlan heldur opnar smiðjur og námskeið, tekur að sér verkefni og ráðgjöf ásamt að styðja listafólk við þátttöku í listalífi.
Meirihluti starfsfólks og kennara er sjálft fatlað fólk. Þannig breytir Listvinnzlan ekki aðeins því hver fær að skapa list, heldur líka því hver velur, kennir og miðlar.
Starfsfólk Listvinnslunar tekur að sér ráðgjöf, þjónustu og verkefni fyrir einstaklinga, hópa, stofnanir og fyrirtæki.
Listvinnzlan veitir aðstoð við að halda sýningar, við sölu listaverka og aðstoðar áhugasama við að fjárfesta í myndlist. Hægt er að skoða verk og hafa samaband á heimasíðu Listvinnzlunar https://www.listvinnslan.is/
Margrét M. Norðdahl stofnaði Listvinnzluna árið 2022 en stofnun Listvinnzlunar á sér aðdraganda allt til ársins 2011. Nafnið vísar í framtíðina, frá fiskvinnslu til Listvinnzlu. Listin og skapandi vinna á sér engin takmörk og útilokar engan.
Okkur í Fjölmennt hefur fundist gaman að fylgjast með Listvinnslunni stækka og dafna og óskum þeim og öllu því listafólki sem þar starfar til hamingju með viðurkenninguna:)


