Ég dansa til að gleyma
Á þessu námskeiði dönsum við saman.
Við notum dansinn til að gleyma óþarfa áhyggjum
Við notum dansin til þess að njóta stundarinnar.
Hvað gerum við á námskeiðinu?
• prófa alls konar hreyfingar
• kynnast mismunandi dönsum
• kynnast því sem líkaminn þinn getur gert
• dansa við tónlist sem okkur finnst skemmtileg
• sletta úr klaufunum og hafa gaman
Hvaða tónlist vilt þú dansa við?
Skrifaðu uppáhaldslagið þitt í athugasemdir eða komdu með lagið í tímann.
Við setjum lagið á spilunarlistann okkar.
Umsóknarfrestur er til 20.nóvember
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember
