Eldað með Air-fryer

Þetta er námskeið fyrir alla sem vilja læra að elda með Air-Fryer.
Unnið er eftir myndrænum/skrifuðum uppskriftum eftir því hvað hentar hverjum þátttakanda.
Stefnt er að því að þátttakendur:
- Taki þátt í matargerð, borðhaldi og frágangi eftir máltíð.
- Njóti borðhaldsins.
- Upplifi ánægjuleg samskipti og njóti stundarinnar.
Umsóknarfrestur er til 16.júní.
Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.
Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan ágúst.