Fatasaumur - nýtt

Langar þig að sauma þína eigin flík? Á námskeiðinu lærir þú grundvallaratriði í fatasaumi og saumar þér flík.

 

Á námskeiðinu lærir þú að:

- velja þér viðfangsefni

- taka mál og velja snið sem passar

- sníða flík

- færð reynslu í því að sauma á saumavél

- sauma flík
 

Viðfangsefni verður aðlagað eftir óskum og áhuga þátttakenda hverju sinni.

 

Umsóknarfrestur er til 16.júní.

 

Bréf um inntöku mun berast þegar lágmarksþátttaka hefur náðst.

 

Reynt verður að fara eftir óskum umsækjenda um tímasetningar.
Vinsamlega takið fram í athugasemdadálki hvaða tími kemur alls ekki til greina.


Staður: Auglýst síðar
Verð: 19.000 - 29.500
Tími: 4 - 6 vikur