Fjölleikhúsið - söngur, leiklist, dans

Á þessu námskeiði æfum við saman og búum til leiksýningu.

 

Hvað gerum við á námskeiðinu?

 

Við vinnum saman sem leikhópur.

Þú getur unnið með

- persónur í leikriti

- atriði

- senur

- leiklist

- söng og dans

- framkomu á sviði

- samvinnu

 

Við æfum saman og undirbúum lokasýningu.

Þú færð að kynnast því hvernig leiksýning verður til frá upphafi til enda.

 

Hvað lærir þú?

Námskeiðið getur hjálpað þér að:

- verða öruggari á sviði

- æfa samvinnu og samskipti

- læra hvernig leiksýning verður til

- fá reynslu af leik og sviðsframkomu

 

Umsóknarfrestur er til 20.nóvember

Bréf sem staðfestir inntöku á námskeið mun berast eftir miðjan desember

Staður: Dansverkstæðið, Hjarðarhaga 47
Verð: 18.200 - 36.400 kr
Tími: 12 - 16 vikur